Ársfundur Retrieverdeilar 11.maí 2021

Þriðjudaginn 11. maí verður ársfundur Retriever deildar haldinn í húsakynnum HRFÍ að Síðumúla 15 kl.20.00

Verkefnið eru hefðbundin ársfundarstörf.

  • Farið yfir ársskýrslu stjórnar fyrir 2020
  • Farið yfir rekstrareikning fyrir 2020
  • Kosið um tengilið fyrir labrador
  • Kosið til stjórnar Retrieverdeildar. Þrjú sæti eru laus til tveggja ára.
  • Val í nefndir
  • Stigahæsti hundur á veiðiprófum 2020 heiðraður
  • Önnur mál.

Samkvæmt reglum um ræktunardeildir er stjórn skipuð 5 stjórnarmeðlimum og eru þeir kosnir til 2 ára, tveir og þrír í senn. Nú eru þrjú sæti laus og eru það sæti Gunnars Arnar Arnarsonar, Heiðars Sveinssonar og Sunnu Birnu Helgadóttur, Sunna gefur kost á sér áfram.

Við hvetjum ykkur kæru félagsmenn að gefa kost á ykkur til að starfa í stjórn og nefndum deildarinnar. Það er skemmtilegt að starfa í kringum áhugamálið, styrkur okkar er að sem flestir gefi kost á sér og að þátttakendur séu með mismunandi sýn og áhuga. Þá verður starfið fjölbreyttara og meiri líkur á að það falli að fjöldanum.

Hér má sjá upplýsingar um nefndir og deildina https://www.retriever.is/deildin/

Ársskýrsla deildarinnar er kominn inn á vefsíðu undir fundargerðir og má finna hana hér

Ef það eru einhver sérstök mál sem þið viljið koma að á ársfundi til umræðu væri gott að senda erindi áður, það er ekki skylda en gefur færi á meiri umræðum.