Árið framundan

Á fyrsta fundi ræktunarstjórnar eftir ársfund var meðal annar tekið fyrir að skipta með sér verkum.

Næsta starfsár verður verkaskipting eftirfarandi:

  • Heiðar Sveinsson formaður
  • Unnur Olga Ingvarsdóttir gjaldkeri
  • Gunnar Örn Arnarson ritari
  • Sunna Birna Helgadóttir og Óli Þór Árnason meðstjórnendur

Það er spennandi ár framundan með þéttri dagskrá.  11 veiðipróf, 1 vinnupróf (WT), deildarsýning og svo 5 sýningar á vegum HRFÍ.

Að auki eru nefndir með uppákomur, sýningarnefnd hefur haldið fræðslufund og svo eru að sjálfsögðu sýningarþjálfanir fyrir allar sýningar.  Eins eru í bígerð frekari uppákomur tengdar sýningarþjálfunum.  Veiðinefnd hefur haldið eitt fræðslukvöld, frekari nýliðakynningar eru í bígerð og væntanlega æfingardagar og fleira.

Ræktun hefur verið með miklum blóma undanfarin ár og er það gott  því eftirspurn er mjög mikil eftir retriever hvolpum.  Við í ræktunarstjórn tökum til okkar umræður frá ársfundi varðandi upplýsingar til ræktenda og vinnum að betri upplýsingagjöf á heimasíðu á næstu misserum.   Ræktun er ábyrgðarhlutur og viljum við benda ræktendum á að vanda til verka áfram og kynna sér eins og kostur er heilsufar og eiginleika ræktunardýra.

Við brýnum ykkur kæru félagar að skrá ykkur til vinnu í kringum næstu sýningu þar sem það stendur nú uppá Retrieverdeild  ásamt nokkrum öðrum að vinna þessi verk.  Margar hendur vinna létt verk og ekki sanngjarnt að þeir sem standi í stafni í starfinu þurfi að sinna öllum verkum.  Það er sannur félagsandi að taka þátt í svona verkum.   Ég trúi ekki að þið kæru félagsmenn látið það vitnast að stærsta og öflugasta deild HRFÍ geti ekki útvegað fólk til að vinna á sýningum.  11-12% af öllum sem skráðir eru á sýningar eru frá þessari deild. Koma svo og flikkið ykkur á bak við Óla. hér má skrá