Ljósavíkurbikarinn

Þriðja árið í röð er blásið til veislu norðan heiða þar sem norðanfólk innan Retrieverdeildarinnar stendur að veiðiprófi fyrir hönd deildarinnar og veiðinefndar.

Ljósavíkurræktun sem Ingólfur Guðmundsson og Nína María Reynisdóttir standa að mun gefa bikar sem er eins konar miðsumarprófs bikar og verður veittur fyrir besta hund á báðum prófum fyrir norðan.